STERKARI60+

Næsta námskeið byrjar 20. janúar

___________________________________

FRÁBÆRT NÁMSKEIÐ FYRIR FÓLK 60 ÁRA OG ELDRI SEM VILL TAKA HEILSUNA Á NÆSTA STIG

___________________________________

  • Fjögurra vikna fjarnámskeið

  • Þrjár styrktaræfingar á viku

  • Fræðsla

  • Stuðningur

___________________________________

Sérstakt janúartilboð 18.900 kr.

Skrá mig

ÞAÐ ER EKKI OF 
SEINT AÐ VERÐA 
HEILSUHRAUSTUR!

Aukin lífsgæði með reglulegri hreyfingu -náðu meiri virkni, styrk og sjálfstæði á efri árum.


Hér má nálgast frekari upplýsingar um námskeiðið

NÁNAR



Af hverju Sterkari60+?

____________________________________________________________________________

Í gegnum þjálfun okkar höfum við tekið eftir mjög jákvæðri breytingu á fólki sem stundað hefur reglulega styrktarþjálfun. 

Okkur þykir ótrúlega gaman að sjá fólk vaxa áfram þó það sé komið á efri ár lífsins og þess vegna viljum við gefa fleira fólki tækifæri á að upplifa bætta heilsu með okkur í Sterkari60+.



Þegar við eldumst er hreyfing lykilatriði til að viðhalda lífsgæðum, styrk og jafnvægi


Sterkari60+

Þú lærir hvernig þú byggir upp styrk og þrek, eykur jafnvægi og bætir líkamsstöðu með fjölbreyttum æfingum sem eru við allra hæfi, óháð fyrri reynslu.


Sterkari60+ er hannað til að hjálpa fólki 60 ára og eldri að bæta líkamlega vellíðan með sérsniðnum æfingum sem stuðla að sjálfstæði, öryggi og ánægju í daglegu lífi.


Skrá mig



Markviss styrktarþjálfun gegnir lykilhlutverki í að viðhalda beinþéttni og vöðvastyrk eldra fólks


Hvað býður Sterkari60+ upp á?



Æfingar


  • Aðeins 15-20 mínútur þrisvar sinnum í viku.
  • Tímasparandi og auðvelt að innleiða í daglega rútínu. 
  • Þú getur æft heima hjá þér, í þínum eigin takti.
  • Einungis þarf eina ketilbjöllu og teygjur.

Fræðsla


  • Fræðsla og stuðningur á meðan á námskeiðinu stendur. 
  • Stuttir fræðsluþættir um t.d. næringu, mikilvægi réttrar líkamsstöðu, af hverju styrktarþjálfun er mikilvæg og hvernig við getum forðast byltur.​

Árangur


  • Fjögurra vikna námskeið sem byggir upp sterkan grunn fyrir áframhaldandi hreyfingu.
  • Á meðan á námskeiðinu stendur lærir þú hvernig þú styrkir þig, eykur jafnvægi, byggir upp þrek og bætir líkamsstöðu með fjölbreyttum æfingum sem eru við allra hæfi, óháð fyrri reynslu.

Auðvelt, aðgengilegt og í þínum eigin takti!

Þjálfarar

Saadia Auður 

Útskrifaðist sem íþróttafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík árið 2015 og þjálfar nú hóptíma fyrir fólk 60 ára og eldri, auk almennra hóptíma, námskeiða og einkaþjálfunar.

Í þjálfun sinni leggur Saadia mesta áherslu á að fólk upplifi heilsurækt á jákvæðan og uppbyggilegan hátt, óháð líkamlegri getu, markmiðum eða öðrum þáttum.

Daníel

Hefur víðtæka reynslu sem þjálfari og hefur unnið með einstaklingum á öllum aldri. Hann er með diploma í styrktar- og þrekþjálfun frá Háskóla Reykjavíkur. Undanfarin ár hefur hann sérstaklega lagt áherslu á þjálfun fyrir fólk 60 ára og eldri, með framúrskarandi árangri. 

Markmið Daníels í þjálfun er að hjálpa fólki að hreyfa sig rétt, byggja upp styrk og öðlast aukið sjálfstraust í daglegu lífi með markvissri styrktarþjálfun.

Skráðu þig í dag og taktu fyrsta skrefið í átt að betri heilsu og auknum lífsgæðum!


Skrá mig